Sælir blakarar nær og fjær.

Skráning fyrir haustmót KA er hafin og lýkur henni miðvikudaginn 23. nóvember á miðnætti.

Spilaðar verða tvær unnar hrinur upp í 21. Oddahrina er upp í 15. Tvö stig verða að skilja til að vinna hrinu.

Reiknað er með að á mótinu verði einn styrkleikaflokkur karla og tveir styrkleikaflokkar kvenna. Ræðst það þó af fjölda liða.

Þátttökugjald fyrir eitt lið er 9000 kr, fyrir tvö lið 16000 kr og fyrir þrjú lið 21000 kr.

Vinsamlegast greiðið mótsgjald inn á reikning 0164-26-1964, kt. 210864-2379 (sendið kvittun á kristjan@grofargil.is)

 

Nýjustu mótsfréttir