Kæru blaköldungar, -öðlingar og -ljúflingar Íslands.
Fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar og blakdeildar Þróttar í Reykjavík boða ég til 36.Öldungamóts Blaksambands Íslands sem haldið verður í Vestmannaeyjum dagana 5. - 7. maí 2011. Spilað verður á 10 völlum, 9 völlum í sama húsi í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum þar sem einnig er sundlaug í sömu byggingu. Týsheimilið verður svo notað fyrir 10. völlinn ef þess þarf en það er í 2ja mínútna fjarlægð frá Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum.

Mótið hefur hlotið nafnið ÖLD 2011.

Blaköldungur er með netfangið oldungur@blak.is

Heimasíða mótsins hefur verið opnuð og er slóðin: www.old2011.is

Sjá nánar um reglur varðandi Öldungamót BLÍ í fyrstu frétt mótsins síðan í febrúar.

Með kærum blakkveðjum.
Jón Ólafur Valdimarsson (Jóli)
Blaköldungur 2011

Nýjustu mótsfréttir