Opnar æfingabúðir á Hvolsvelli 20. og 21. sept.

Hinar geysivinsælu æfingabúðir Dímonar verða á Hvolsvelli helgina 20. og 21. september. Þá stendur blakdeild Dímonar í þriðja sinn fyrir opnum æfingabúðum fyrir blakara í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Blakdeildin hefur fengið aftur til liðs við sig hina landsþekktu blakara þau Emil Gunnarsson og Laufeyju Björk Sigmundsdóttur  til þess að skipuleggja æfingabúðirnar og stjórna æfingum alla helgina. 

 

Æfingabúðirnar hefjast klukkan 10:00 laugardaginn 20. sept  og standa æfingar með hléum til klukkan 18:00.  Á sunnudeginum hefjum við svo leikinn aftur kl. 10:00 að morgni æfum til hádegis og  sláum svo upp móti í lokin. 

 

Gjald fyrir alla helgina er kr. 5000.   Innifalið í gjaldinu er þjálfunin, keppnin og léttur hádegisverður báða dagana  og að sjálfsögðu kaffi eins og hver vill.  Hægt er að taka þátt annan daginn og kostar það kr. 3500.  Hámarksfjöldi þátttakenda báða dagana er 40 manns.

 

Æfingabúðirnar eru opnar fyrir alla þá sem stunda blak, konur og karla og hafa áhuga á að auka færni sína í íþróttinni. Aldurstakmark 16 ár.  Markmiðið er að eiga saman skemmtilega helgi þar sem hver og einn mætir á sínum forsendum.  Þau Emil og Laufey munu svo sjá til þess að allir fái æfingar við sitt hæfi. 

 

Nánari upplýsingar og skráning hjá Halldóru í síma 4884242 , 8686895 eða  halldora@hvolsskoli.is og hjá Maríu Rósu  sími – 4878694 , 8653694 eða mariarosa@simnet.is

 

Síðasti skráningardagur miðvikudagur 17. september  kl.24:00.

 

Látið ekki frábært tækifæri fram hjá ykkur fara.  Sjáumst hress á Hvolsvelli um aðra helgi.

 

Með blakkveðjum

 

Blakdeild Dímonar.