Mikil gróska í mótahaldi

Mörg mót framundan

Eins og sést hér á blak.is þá er mikil gróska í mótahaldi næstu vikur og allt fram að Öldungamótinu.  Staðan er að verða sú að varla er laus helgi þennan tíma og því ljóst að lið þurfa í mörgum tilfellum að velja á milli móta.  Væri ekki upplagt að dreifa þessu aðeins meira og halda fleiri mót á haustin þegar nóg er um lausar helgar?

Að gefnu tilefni viljum við benda fólki á það að nokkur mót eru haldin sem ekki nota blak.is og birtast þar af leiðandi ekki í listanum yfir næstu mót.