Skráning hafin á yngriflokkamót BLÍ

Fyrra Íslandsmót yngriflokka BLÍ verður haldið á Neskaupstað 9.-10. nóvember.   Skráning er hafin á blak.is og er opin til 7. nóvember.

Fyrra Íslandsmót yngriflokka BLÍ verður haldið á Neskaupstað 9.-10. nóvember. Forráðamenn liða eru beðnir um að klára skráningu liða á www.blak.is í síðasta lagi 7. nóvember þannig að hægt sér að raða mótinu. Lið í 5. fl. mega vera blönduð og hægt er að sækja um undanþágu um blönduð lið í 4. flokki. Ef spurningar vakna hafið þá samband við Petrúnu Jónsdóttur Þrótti Neskaupstað petrabj@islandia.is

Yngriflokkanefnd BLÍ