Hattarar bjóða til Asksmóts á Egilsstöðum 6.–7. febrúar
Keppt verður í karla- og kvennadeildum og raðað í deildir eftir styrkleika svo vonandi fá allir leiki við hæfi.
Við spilum frá kl. 17:30-21:30 á föstudegi og 8-15 á laugardegi, en skipulagið verður sent út eftir að skráningarfresti lýkur.
Á föstudagskvöldi verður gaaasalega skemmtilegt Pöbbkviss í boði Óttars og Valda á Aski Taproom kl. 22 og hægt að fara á pizzahlaðborð á Aski Pizzeria þegar lið hafa lokið keppni fyrir litlar 2700kr (gos innifalið), auk þess verða einhver svaðaleg tilboð á barnum svo það ættu allir að geta skálað duglega fyrir velgengni sinni - nú eða drekkt sorgum sínum þar.
Kóðinn HOTTURBLAK veitir síðan 20% afslátt í Vök Baths svo hægt er að slaka vel á og skola af sér áður en haldið er aftur heim.
Fyrirspurnir velkomnar á blakdeildhattar@gmail.com
Hlökkum til að sjá ykkur öll!!!
English