Hæ, hó blakarar!  Nú er loksins komið að Snæfellsbæjarmóti sem verður haldið laugardaginn 22. mars í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar. Spilað verður á þremur völlum í karla- og kvennadeildum.

Mótsgjald er 7.500 krónur.

Skráning hjá Eiríki Gautssyni, www.linnig@isholf.is, s. 8937768 og Elísabetu Jensdóttur, www.betabaldi@simnet.is, s. 8937288.

Athugið! Aðeins tæpl. 2 klst. akstur frá Reykjavík.

Ef þið viljið eyða hér langri helgi í frábæru umhverfi, hafið þá samband við okkur varðandi tilboð í gistingu. Einnig höfum við fengið tilboð í Matseðil frá Hótel Ólafsvík vegna kvöldverðar.

Vonumst til að sjá sem flesta og ekki síst blakfélaga okkar, sem við höfum heimsótt á liðnum árum.

Hittumst hress og kát í Snæfellsbæ!

Blakkveðjur - Umf. Reynir og Umf. Víkingur

Nýjustu mótsfréttir