Verið velkomin á Laugarvatnsleika Laugdæla. 

Ég er svoddan sveitalubbi að það verður gaman að sjá hvort mér tekst að koma þessu skammlaust á forsíðuna. Alla vega héldum við að við hefðum sett okkar mót á lausa helgi en svo virðst vera að HK sé með mót á sama tíma. Við hins vegar eigum erfitt um vik með að færa okkur vegna íþróttahússins.

Við höfum því ákveðið að bjóða upp á öðru vísi mót að hætti Fylkis og spila 2x15 mín hrinur. Þannig að það er tilvalið að skella sér í sveitina, spila blak sem ekki dregst og skella sér í sund eða í nýja gufubaðið á Laugarvatni (Fontana) á eftir.

Mótsgjaldið er 10.000 kr á lið og skráningarfrestur er til miðnættis 11. janúar.

Hjartanlega velkomin á Laugarvatn þar sem sólin aldrei sest ;)

Nýjustu mótsfréttir