Haustmót BLÍ verður að þessu sinni á Hvolsvelli í umsjón Dímonar.  Mótið verður helgina 29. og 30. sept, keppt verður báða dagana ef mikil þátttaka verður.  Ef mótið kemst allt fyrir á einum degi verður keppt á laugardeginum. 

Skráning verður opnuð á blak.is og verður opin til miðnættis miðvikudaginn 26. september.  Þátttökugjald á lið  er kr. 8.500.-.



Með blakkveðju
Halldóra Magnúsdóttir formaður blakdeildar Dímonar

Nýjustu mótsfréttir