BLÍ á blak.is

Blaksamband Íslands, BLÍ, hefur ákveðið að skrá öll sín mót í mótakerfi blak.is

Blaksamband Íslands, BLÍ, ætlar að nýta sér þjónustu blak.is og skrá öll sín mót í mótakerfið.  Þetta hefur í för með sér að nánast öll úrslit blakleikja á Íslandi verða skráð í gagnagrunn blak.is. 

Smávægilegar viðbætur, þ.e. skilgreina nýtt fyrirkomulag leikja/riðla, þurfti að gera á kerfinu til þess að mögulegt væri að skrá Íslandsmótin en þessar breytingar geta einnig komið öðrum þeim að notum sem halda mót.