Opið fyrir skráningu

Hraðmót Fylkis 2024 verður haldið laugardaginn 20. apríl.Við höfum Fylkishöllina til kl. 16:30 á laugardegi og ef skráning gengur vel verður mögulega spilað á sunnudegi líka.
Nú styttist óðum í öldungarmótið og ekki verra að starta undirbúning fyrir stuðið sem koma skal um miðjan maí. Við hvetjum lið til að skrá sig því þetta verður sannkallað stuðmót með stuðtónlist ásamt því að DJ mætir á svæðið og spilar fyrir okkur.
Tilvalið að liðin haldi svo gleðinni áfram eftir mót eins og vaninn er á öldung eftir góðan blakdag
Skráningu lýkur 16.apríl kl 23:59 á blak.is
Koma svo þetta verður stuð!

Mótsstjóri er Gunni, gunnigunn@gmail.com.
Munið að skrá forsvarsmann liðs með rétt netfang og símanúmer og auðvitað að greiða mótsgjaldið svo Gunni þurfi ekki að ganga eftir því.
Mótsgjald: 
kr. 16.000,-.

Reikningsnúmer: 0515-14-411495.
Kennitala 611094-2649.
Skýring: nafn liðs
Kvittun á: gunnigunn@gmail.com