Þrusumótið! Skemmtilegasta skemmtimót ársins!

Þrusutónlist, þrusuverðlaun og þrusugaman!Þróttur Reykjavík býður blökurum upp á Þrusumót á þessu hausti og verður það haldið í Laugardalshöll dagana 5. og 6. október næstkomandi. Mótið er opið öllum liðum og verður með hefðbundnu hraðmótssniði. Dómarar verða á svæðinu, en lið eru hvött til þess að útvega eitt dómaraefni til öryggis. Ef lið sér sér ekki fært um að útvega dómara, skulu þeir tilkynna það til mótsstjóra og verður fundin lausn á því. Lið leggur einnig til ritara. 

Greiðsla staðfestir skráningu og þarf hún að vera frágengin fyrir klukkan 20 þriðjudagskvöldið 1. október næstkomandi. Lið eru hvött til þess að ganga frá greiðslu um leið og skráning fer fram og senda kvittun á netfangið sigridurp@gmail.com. Skýring greiðslu skal vera "Nafn liðs + Þrusumót2019". Mótsgjaldið er kr. 13000. Vinsamlegast takið fram óskadeild við skráningu, eða sendið á áðurnefnt netfang. 

Reikningsnúmer: 0117-26-258
Kennitala: 5507830379

Sjáumst hress og kát í Höllinni í október!