Æfingar að byrja

Nú eru skólarnir byrjaðir og flestir búnir með sumarfríin sín og þá byrjar náttúrulega blakið aftur.

Flest lið hafa nú fengið æfingatíma og eru byrjuð að æfa af krafti fyrir komandi skemmtilegt tímabil.

Blak.is var notað á flestum mótum síðastliðinn vetur og verður væntanlega svo áfram.  Við viljum benda væntanlegum mótahöldurum á það að skrá sem allra fyrst mótin sín þannig að dreifa megi þeim sem jafnast yfir veturinn.  Markmiðið verði að sem flestir komist á sem flest mót!

Blak.is óskar öllum alls hins besta á komandi leiktíð.